Galtalækur
galtalaekurFrístundahúsasvæðið nær yfir 23 ha. lands úr jörðunum Galtalæk og Merkihvoli í Holta- og Landsveit, Rangárvallasýslu , nú Rangárþingi Ytra og hefur jörðinni verið skipt niður í 22 sumarbústaðalóðir. Landspildan afmarkast að vestan við landamerki Galtalækjar, að austan við Landveg að Brú á Rangá og að sunnan að Ytri-Rangá. Aðkoma að svæðinu er frá Landvegi. Enginn veiðiréttur fylgir landinu né heldur veiði- eða upprekstrarréttur á Landmannaafrétti. Allri vegagerð á svæðinu er lokið.

Galtalækjarskógur er paradís fjölskyldunnar þar sem blandast einstök náttúrufegurð og aðstaða til útivistar. Hekla blasir við austurhiminn eins og vörður um þessa gróðurvin, en skógurinn er gamall birkiskógur sem hefur staðið af sér landeyðingu óbyggðanna. Í Galtalæk er nú eitt stærsta tjald- og útivistarsvæði landsins og hafa útihátíðir verið haldnar þar um verslunarmannahelgar síðan 1967.