Fornminjar
Jarðarinnar Galtalækjar er getið í máldaga Skarðskirkju. Í tengslum við gerð aðalskipulags var gerð skráning fornminja. Í Fornminjaskrá er upptalning örnefna og mannvirkja sem teljast til fornminja. Heimildir eru um bænhús RA- 468:002- Kuml RA-468:010 - fjárhús RA-468:024- álagablett RA-468:016- heimild um brú RA-468:012- og heimild um vað, ekki mun vera að ræða um slíkar fornminjar á landi I.O.G.T. (heimild Sveinn í Galtalæk)

*1. Fjárhússtóftir eru við Ármannsflötinni sem eru innan við 100 ára gamlar, (heimild Sveinn í Galtalæk) um er að ræða vegghleðslur úr hraungrýti. Að hluta til eru tóftirnar heillegar, gert er ráð fyrir að endurgera veggi og styrkja og nýta tóftirnar sem áningastað á gönguleið. Koma þarf fyrir upplýsingaskiltum um gönguleiðir og sögu staðarins og aðstöðu fyrir borð og bekki. *2. Álfhóll er við fjárhústóftirnar. (heimild Sveinn í Galtalæk) Til er munnmælasaga um að ekki skuli slá eða hrófla við hólnum. *3 Kross- minnismerki um ungan mann sem fórst á leið sinni milli bæja í
óveðri, um 1930.